Fjóla frá Kirkjubæ og Eva Dyröy |
Á Kirkjubæ á Rangárvöllum rekum við fjölskyldan hrossaræktarbú og höfum gert um árabil. Ræktunarstarfið á bænum hófst raunar um miðja síðustu öld og er Kirkjubær eitt fyrsta sveitabýlið á Íslandi sem byggir alfarið á hrossarækt og hestamennsku. Hestamennskan er mikilvægur hluti af okkar daglega lífi og öll fjölskyldan tekur þátt. Við erum í samstarfi við frábæra tamningamenn og hestaþjálfara, Guðmund og Evu á Ingólfshvoli, Halldór og Helle (www.natthrafn.com) og Daníel Jónsson á Hellu. Okkar markmið er fyrst og fremst að njóta samvistanna með hestinum, eflast sem hestamenn og rækta betri hross. Við teljum Íslenska hestinn vera eitt mesta verðmæti þjóðarinnar.
|
|
Lesa meira...
|
|
|