| Eva |
|
|
|
| Skrifað af Otkell Skarfsson | |||
| fimmtudagur, 17 júní 2010 | |||
|
Folöldin koma í heiminn hvert af öðru og allt hefur gengið vel fram til þessa. Það var létt yfir Kirkjubæingum um síðustu helgi þegar Fluga gamla lallaði sér heim með nýjasta afkvæmið til að sýna - rauðblesótta hryssu undan Hróðri frá Refsstöðum. Þar er komin alsystir hinnar þekktu Fjólu frá Kirkjubæ. Henni hefur þegar verið gefið nafn og heitir Eva. Í gær komu síðan tveir hestar rauður og brúnn undan Fána frá Kirkjubæ, stórir, reistir og myndarlegir. Skoðið myndir hér neðar.
|
|||
| < Fyrri | Næsti > |
|---|









