|
sunnudagur, 21 júní 2009 |
Fáni frá Kirkjubæ 4v - héraðssýning á Hellu 2009
|
Fáni frá Kirkjubæ er 4 vetra foli sem sýndur var í kynbótadómi á Hellu nú í vor. Hann hlaut í aðaleinkunn 7.92 sem er bara ágætt, enda ekki mikið gerður en fáum dylst að hér er á ferðinni efnilegur klárhestur. Fáni er undan Dyn frá Hvammi og Flugu frá Kirkjubæ og því sammæðra Fjólu sem margir muna eftir frá síðasta sumri. Fluga hefur reynst okkur afburðavel sem undaneldishryssa en hún er af gamalli sterkri klárhestaætt í Kirkjubæ. Við ætlum að veðja á þennan fola og halda nokkrum góðum hryssum undir hann í sumar. Ef einhverjir fleiri eru áhugasamir að taka sjénsinn með okkur þá má leita frekari upplýsinga með tölvupósti á Evu -
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
|
|
Lesa meira...
|
|
|
sunnudagur, 21 júní 2009 |
Hróður kominn í Kirkjubæ
|
Hróður frá Refstöðum var fluttur hreppaflutningum norðan úr Skagafirði í gær og eftir að hafa jafnað sig eftir ferðavolkið var hann settur í hryssur hér í Kirkjubæ í morgun. Hann var að vonum frelsinu feginn þegar honum var sleppt í grösuga girðinguna með glæstan hóp stóðhryssna á alla vegu. Hróður verður hér í Kirkjubæ í allt sumar og er löngu fullbókað hjá hestinum nú fyrri part sumars. Einhver pláss gætu losnað seinni part sumars og er áhugasömum þá bent á tölvupóst hjá Evu -
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
|
|
Lesa meira...
|
|
|
miðvikudagur, 17 júní 2009 |
Nýfædd dóttir Fjólu og Eldjárns
|
Það var mikill gleðidagur í Kirkjubæ í gær þegar kom í ljós að Sending kerlingin var köstuð glæsilegri rauðstjörnóttri hryssu. Blóðforeldrar þeirrar stjörnóttu eru Fjóla frá Kirkjubæ og Eldjárn frá Tjaldhólum en um er að ræða tilraun með fósturvísaflutninga sem dýralæknirinn okkar hann Ellert snillingur sá um að framkvæma. Þetta heppnaðist og við erum rígmontin af þeirri litlu!
|
|
Lesa meira...
|
|
|
mánudagur, 08 júní 2009 |
Þrymur í janúar sl. Gleymdist að taka nýja mynd :-(
|
Þrymur frá Kirkjubæ var byggingadæmdur í síðustu viku og kom í ljós að hann þykir vel gerður.
Höfuð 8.0 - Háls 8.5 - Bak og lend 8.5 - Samræmi 8.5
Fótagerð 9.0 - Réttleiki 7.0 - Hófar 8.5 - Prúðleiki 9.0
Einkunn: 8.44
Þrymur er í hryssum hjá Berglindi og Gunnari í Ey í sumar en verður tekinn til frekari tamningar og þjálfunar næsta vetur. Þetta er efnilegur foli - við hlökkum til að sjá hvað hann getur! |
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 25 - 28 af 43 |