Fáni verður í Kirkjubæ
Skrifað af Otkell Skarfsson   
laugardagur, 20 mars 2010


Fáni 4v Hellu 2009 /ljósmynd Jens EInars

Fáni frá Kirkjubæ er efnilegur klárhestur í eigu Kirkjubæjarbúsins. Hann er undan Dyn frá Hvammi og afburðahryssunni Flugu frá Kirkjubæ og þannig af miklu klárhestakyni í Kirkjubæ. Systur hans eru m.a. Freisting, Spurning, Festing og Fjóla - allt hátt dæmdar kynbótahryssur. Þá má nefna að móðurbræður Fána eru Seifur og Strákur sem báðir voru í fremstu röð töltara á heimsleikum hér um árið. Gert er ráð fyrir að Fáni verði til afnota í Kirkjubæ í sumar en stefnt er með hann í dóm í vor.