Eva
Skrifað af Otkell Skarfsson   
fimmtudagur, 17 júní 2010

Eva frá Kirkjubæ undan Hróðri og Flugu

Folöldin koma í heiminn hvert af öðru og allt hefur gengið vel fram til þessa. Það var létt yfir Kirkjubæingum um síðustu helgi þegar Fluga gamla lallaði sér heim með nýjasta afkvæmið til að sýna - rauðblesótta hryssu undan Hróðri frá Refsstöðum. Þar er komin alsystir hinnar þekktu Fjólu frá Kirkjubæ. Henni hefur þegar verið gefið nafn og heitir Eva. Í gær komu síðan tveir hestar rauður og brúnn undan Fána frá Kirkjubæ, stórir, reistir og myndarlegir. Skoðið myndir hér neðar.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eva í Þjóðhátíðarskapi

...eins gott að detta ekki í þessum þúfum!

...og svo kann maður nú að fíla grön

Reistur sonur Fána og Kleópötru frá Kirkjubæ - splúnkunýr

Halló heimur! - sonur Lilju og Fána með fóstru sinni Bylgju

.......óttalegt flugnager er þetta